Þorsteinn Jóhannsson

Þorsteinn Jóhannsson
framkvæmdastjóri VÖ

  

Vinnustaðir ÖBÍ er fyrirtæki þar sem saman vinna fatlaðir og ófatlaðir einstaklingar við störf í iðnaðar- og þjónustustarfsemi ásamt innflutningi á skyldum vörum. Fyrirtækið er í eigu Öryrkjabandalags Ísland og rekið á ábyrgð þess. Markmið með rekstrinum er að veita fólki með fötlun tímabundna vinnu í formi starfsþjálfunar og/eða vinnu til frambúðar.

Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 36 fatlaðir starfsmenn í 18 stöðugildum og 8 ófatlaðir í 7 stöðugildum.

Fyrirtækið er sjálfstætt starfandi félag, skipað sérstakri stjórn og framkvæmdastjóra. Stjórn Vinnustaða ÖBÍ skipa: Sigurður Þór Sigurðsson stjórnarformaður, Magnús Pálsson og Elísabet Á. Möller stjórnarmenn. Framkvæmdastjóri: Þorsteinn Jóhannsson. 
Rekstur Vinnustaða ÖBÍ nær til þriggja rekstrareininga sem eru Örtækni, Saumastofa ÖBÍ og Ræsting sem starfar á tveimur stöðum.
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.